Komdu með í stórkostlega ferð til Spánar, 8.-13. maí!
Hefur þú hugsað hvar þú ert stödd og hvert þú vilt raunverulega fara? Hvað er að virka og hvað er ekki að virka í lífinu? Hvernig hljómar andleg endurheimt, sjálfsskoðun, hlátur og vinna með frábærum hópi kvenna á stórglæsilegu hóteli á Calpe?
KVAN býður upp á ógleymanlega kvennaferð til Calpe á Spáni í maí. Við ætlum að njóta í botn, hlægja mikið og hafa gaman ásamt því að borða góðan og heilsusamlegan mat og drekka í okkur menningu þessa bæjar Spánar sem þekktur er fyrir fegurð og frábært andrúmsloft. Við munum saman vinna í að styrkja okkur andlega og líkamlega, í einstaklega fallegu umhverfi og þægilegu loftslagi.
Ef þú tengir við það að vera með marga bolta á lofti og vera oft á tíðum þreytt. Vilt upplifa eitthvað nýtt og finna orkuna, gleðina, hugrekkið og kraftinn, þá er þetta ferð fyrir þig.
Nú setur þú ÞIG í forgang. Markmið ferðarinnar er að efla okkur á allan hátt sem við gerum með því að koma auga á styrkleika okkar og hvernig við nýtum þá til fulls, auka jákvæðni og samkennd í eigin garð og annarra, vinna í okkur, finna leiðir til að minnka streitu og vera í meira jafnvægi. Saman finnum við gleðina og kraftinn!
Förum inn í vorið 2025 með hæfilegar kröfur á okkur sjálfar. Sleppum öllum rembing og opnum frekar fyrir þann möguleika á að sjá styrkleika okkar og opna fyrir einhverju nýju. Finnum hugrekkið og húmorinn, sköpunarkraftinn, einlægnina og ástríðuna.
Þú getur mætt ein, með vinkonu, vinnufélaga eða fjölskyldumeðlim - það skiptir engu máli. Aðalmálið er að taka ákvörðun og setja þig í forgang!
Ferðin er alger upplifun. Við kynnumst fallegum bæ, skoðum drykkjar- og matarmenningu, upplifum garða, torg, strendur og náttúruna í öllu sínu veldi. Borðum saman dásamlegan og góðan mat og upplifum ævintýralega ferð. Ferð sem snertir á öllum skynfærum.
ÞJÁLFARI
Anna Steinsen og Ásta Kristjánsdóttir eru yfirþjálfarar í kvennaferðinni og munu fylgja hópnum alla leið.
VERÐ
204.900 krónur á konu miðað við gist sé í tveggja manna herbergi
244.900 krónur á konu miðað við að gist sé í einstaklingsherbergi
INNIFALIÐ Í VERÐI
- Flug fram og til baka til Alicante með Play
- 20 kg. innritaður farangur + lítill handfarangur sem passar undir sæti
- Akstur frá Alicante flugvelli að hóteli í Calpe, fram og til baka
- Gisting í 5 nætur á Gran Hotel Sol Y Mar með morgunverði. Hótelið er glæsilegt fjögurra (og hálfrar) stjörnu hótel aðeins ætlað fullorðnum, frábærlega staðsett í Calpe
- Námskeið, andleg endurheimt, sjálfsmildi, gleði, samkennd og aukið hugrekki
- Fararstjórn
FERÐATILHÖGUN
Flogið er með Play kl. 15:30 til Alicante þann 8. maí, lent verður í Alicante kl. 22:05 að staðartíma.
Rúta ekur hópnum frá flugvelli á Alicante til Gran Hotel Sol Y Mar.
Flug heim er svo 13. maí klukkan 23:05 og lent í Keflavík um klukkan 01:50
Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið samband við okkur á kvantravel@kvan.is eða í síma 519 3040
Hlökkum til að ferðast með ykkur!