Komdu með í stórkostlega ferð til Murcia á Spáni, 22.-25. mars!
Í umspili um sæti í B deild Þjóðardeildar UEFA. "Heimaleikur" Íslands gegn Kósovó verður leikinn á Estadio Enrique Roca í Murcia á Spáni þann 23. mars 2025.
Leikvangurinn í Murcia tekur ríflega 30 þúsund áhorfendur. Estadio Enrique Roca de Murcia er staðsettur í bænum Churra, sem liggur rétt norðan við Murcia borg, og er leikvangurinn í u.þ.b. 7 kílómetra fjarlægð frá miðbæ Murcia. KVAN Travel býður takmarkað magn af sætum í ógleymanlega ferð á leikinn.
FARARSTJÓRI
Harald Pétursson eigandi SmartSport mun vera með ítarlega greiningu á íslenska landsliðinu. Harald er íþróttagreinandi og sérfræðingur sem hefur aðstoðað ótal mörg lið, hérlendis sem og erlendis, með greiningar á leikmönnum og leikskipulagi liðanna við frábæran árangur.
VERÐ
119.900 krónur á farþega miðað við gist sé í tveggja manna herbergi
147.900 krónur á farþega miðað við að gist sé í einstaklingsherbergi
INNIFALIÐ Í VERÐI
- Flug fram og til baka til Alicante með Play
- 20 kg. innritaður farangur + lítill handfarangur sem passar undir sæti
- Akstur til og frá Alicante flugvelli að hóteli í Murcia
- Gisting í 3 nætur á Melia Murcia Rincón de Pepe með morgunverði. Hótelið er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel, frábærlega staðsett í Murcia. (Sjá hótel hér)
- Ítarleg greining með nýjustu tækni á leik íslenska liðsins
- Íslensk fararstjórn
FERÐATILHÖGUN
Flogið er með Play kl. 15:50 til Alicante þann 22. mars, lent verður í Alicante kl. 21:25 að staðartíma.
Rúta ekur hópnum frá flugvelli á Alicante að Melia Murcia Rincón de Pepe.
Leikdagur Íslands er 23. mars.
Akstur frá hóteli að flugvelli kl. 13:00 þann 25. mars.
Flug heim er svo klukkan 15:35 og lent í Keflavík um klukkan 19:25.
Ef einhverjar spurningar vakna þá hafið samband við okkur á kvantravel@kvan.is eða í síma 519 3040
Hlökkum til að ferðast með ykkur!