Endurmenntunarferð íþróttakennara til Tenerife 12.-17. desember

 

***Vegna fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að endurtaka leikinn frá síðasta vetri***

 

Opin endurmenntunarferð fyrir íþróttakennara til Tenerife dagana 12.-17. desember. Opin ferð þýðir að íþróttakennarar geta skráð sig burt séð frá því hvaða skóla þeir tilheyra og fá þá sérhannaða ferð sniðna að þeirra þörfum. Ferðin í fyrra fór fram úr okkar björtustu vonum þar sem gleðin, samheldnin og kærleikurinn skein frá upphafi til loka.

 

KVAN og KVAN Travel hafa sett saman frábæra endurmenntunarferð til Tenerife í desember. Ferðin er frábært tækifæri fyrir íþróttakennara að sækja sér námskeið og innblástur fyrir kennslu á suðrænum slóðum undir lok næstu annar.

Skráning fer fram hér að neðan, farið er fram á 40.000 kr. staðfestingargjald, staðfestingargjaldið er óendurkræft en lokagreiðsla greiðist svo í síðasta lagi 9 vikum fyrir brottför (áminning um lokagreiðslu verður send á kaupanda).

 

Heildarverð ferðar eru eftirfarandi: ​​

  • Verð á kennara miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi: 237.900 kr.
  • Verð á kennara ef gist er í einstaklingsherbergi: 272.900 kr.
  • Verð fyrir maka í tveggja manna herbergi með kennara: 197.900 kr.

Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 9 vikum fyrir brottför.

Hægt er að greiða með kreditkorti eða Netgíró.

 

  • Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 18 þátttakendur þarf svo farið verði. Skráningu líkur 1. september.
  • Möguleiki er á að framlengja ferðina – þá er mikilvægt að senda okkur línu eftir bókun í gegnum kvantravel@kvan.is og við athugum framboð á heimferðadögum. 

 

Allar nánari upplýsingar og dagskrá ferðar má sjá hér neðar á síðunni

Price range: 197.900 kr. through 272.900 kr.

Afsláttur:
Greiða innborgun á 40.000 kr.
Samtals 197900

Farþegaupplýsingar:

Skilaboð til KVAN Travel

Kennitala greiðanda



Lengd:
5 dagar
Samgöngur
Flug, akstur erlendis
Gerð ferðar:
Endurmenntunarferð
Vörunúmer:
K-165
Staðsetning:

 

Komdu með í stórkostlega opna endurmenntunarferð til Tenerife dagana 12. - 17. desember 2026. Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 18 þátttakendur þarf svo farið verði. Síðasti séns til að skrá sig í ferðina er 1. september.

Innifalið í ferðinni:
  • Beint flug með Icelandair til Tenerife
  • 23 kg. farangursheimild + 10 kr. handfarangur
  • Gisting á GF Hotel Gran Costa Adeje í 5 nætur með morgunverði (sjá hótel hér)
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Námskeið - Andleg og líkamleg hleðsla með Sólveigu Ösp Haraldsdóttur
  • Golfkennsla hjá Golf Los Palos
  • Kennsla og leiðsögn í strandblaki hjá SportSpirit Camps
  • Íslensk fararstjórn alla leið

Fararstjórn er í höndum Boga Hallgrímssonar frá KVAN og Ómars Freys Rafnssonar íþróttakennara.

Hægt er að sjá efnisþætti og nánari dagkrá HÉR

 

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!

Kær kveðja,
KVAN Travel

Herbergi

Einstaklingsherbergi, Tveggja manna herbergi, Maki

Innifalin þjónusta

Flug fram og til baka til Tenerife með Icelandair 23 kg. innritaður farangur + handfarangur Gisting á GF Hotel Gran Costa Adeje í 5 nætur með morgunverði Akstur til og frá hóteli á Tenerife Námskeið - Andleg og líkamleg hleðsla
Golfkennsla hjá Golf Los Palos Heimsókn og kennsla í strandblaki hjá SportSpirit Camps Fararstjórn

Dagskrá

12. desember - Ferða- og námskeiðsdagur

13. desember - Kl. 10:00-12:00. Námskeið - Andleg og líkamleg hleðsla, mjúkt jóga á ströndinni

14. desember - Kl. 09:00-12:00. Golfkennsla - Golf Los Palos

15. desember - kl. 10:00-13:00. Heimsókn og kennsla - SportSpirit Camps

16. desember - Frjáls dagur

17. desember - Heimferðadagur