Opin endurmenntunarferð kennara til Tenerife 11.-15. júní 2027

 

Opin endurmenntunarferð fyrir kennara til Tenerife dagana 11.-15. júní 2027. Opin ferð þýðir að kennarar geta skráð sig burt séð frá því hvaða skóla þeir tilheyra. Frábær ferð fyrir kennara á yndislegu eyjunni Tenerife í lok skólaársins, námskeið, sól, gleði og í senn ró og hleðsla munu einkenna ferðina. Gist verður á glæsilegu hóteli á Adeje svæðinu (GF Gran Costa Adeje) og er hálft fæði innifalið – morgunmatur og hádegis-eða kvöldverður (val).

 

KVAN og KVAN Travel hafa sett saman frábæra endurmenntunarferð til Tenerife í janúar. Ferðin er frábært tækifæri fyrir kennara að sækja sér námskeið og innblástur fyrir kennslu á suðrænum slóðum undir lok skólaársins.

Skráning fer fram hér að neðan, farið er fram á 50.000 kr. staðfestingargjald, staðfestingargjaldið er óendurkræft en lokagreiðsla greiðist svo í síðasta lagi 9 vikum fyrir brottför (áminning um lokagreiðslu verður send á kaupanda).

 

Heildarverð ferðar eru eftirfarandi: ​​

  • Verð á kennara miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi: 269.900 kr.
  • Verð á kennara ef gist er í einstaklingsherbergi: 303.900 kr.
  • Verð fyrir maka í tveggja manna herbergi með kennara: 229.900 kr.

Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 9 vikum fyrir brottför.

Hægt er að greiða með kreditkorti eða Netgíró.

 

  • Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 25 þátttakendur þarf svo farið verði. Skráningu líkur 1. mars.
  • Athugið að skrá ykkur ekki sem maki ef þið ætlið að sækja um styrk fyrir endurmenntun.
  • Athugið að einungis er hægt að skrá einn þátttakanda í einu í ferðina – herbergisfélagar þurfa því báðir að skrá sig.
  • Möguleiki er á að framlengja ferðina – þá er mikilvægt að skilja eftir athugasemd í bókunarferlinu, við athugum þá framboð á heimferðadögum. 

 

Allar nánari upplýsingar og dagskrá ferðar má sjá hér neðar á síðunni.

Price range: 229.900 kr. through 303.900 kr.

Afsláttur:
Greiða innborgun á 50.000 kr.
Samtals 229900

Farþegaupplýsingar:

Skilaboð til KVAN Travel

Kennitala greiðanda



Lengd:
4 dagar
Samgöngur
Flug, akstur erlendis
Gerð ferðar:
Endurmenntunarferð
Vörunúmer:
K-184
Hópastærð:
Lágmark 25 manns
Staðsetning:

 

Komdu með í stórkostlega opna endurmenntunarferð til Tenerife dagana 11. - 15. júní 2027. Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 25 þátttakendur þarf svo farið verði. Síðasti séns til að skrá sig í ferðina er 1. mars 2027.

Innifalið í ferðinni:
  • Beint flug með Icelandair til Tenerife
  • 23 kg. farangursheimild + 10 kr. handfarangur
  • Gisting á GF Hotel Gran Costa Adeje í 5 nætur með hálfu fæði (sjá hótel hér)
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Námskeið KVAN
  • Námskeið - Andleg og líkamleg hleðsla með Sólveigu Ösp Haraldsdóttur
  • Íslensk fararstjórn alla leið

Fararstjórn er í höndum þjálfara KVAN.

Hægt er að sjá efnisþætti og nánari dagkrá HÉR

 

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!

Kær kveðja,
KVAN Travel

Herbergi

Einstaklingsherbergi, Tveggja manna herbergi, Maki

Innifalin þjónusta

Flug fram og til baka til Tenerife með Icelandair 23 kg. innritaður farangur + handfarangur Gisting á GF Hotel Gran Costa Adeje í 5 nætur með hálfu fæði Akstur til og frá hóteli á Tenerife Námskeið Sólveigar Aspar Haraldsdóttur
Námskeið KVAN Fararstjórn

Dagskrá

11. júní - Ferðadagur

12. júní - Kl. 10:00-13:00. Námskeið KVAN - Markmið og væntingar & Jákvæð samskipti, leiðir til árangurs

13. júní - Kl. 10:00-12:00. Námskeið, Sólveig Ösp Haraldsdóttir - Andleg og líkamleg hleðsla

14. júní - Kl. 10:00-13:00. Námskeið KVAN - Jafningjasambönd og leiðtogar

15. Júní - Námskeiðs- og heimferðadagur