Playful Learning – Námsferð til Danmerkur 11. – 15. ágúst – UPPSELT

Uppselt er í ferðina. Verið er að athuga með fleiri sæti. Vinsamlegast hafðu samband við okkur á kvantravel@kvan.is fyrir frekari upplýsingar.

 

Fyrsta playful Learning ferð okkar seldist hratt upp og vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við nýrri ferð í ágúst. Í þessari endurmenntunarferð til Billund og Árósar í Danmörku verður unnið eftir hinni vinsælu hugmyndafræði “Playful Learning” eða að læra í gegnum leik. Þetta er einstök ferð sem flestir kennarar ættu að geta lært nýja nálgun sem hægt er að nýta í störfum sínum hér heima.

235.900 kr.287.900 kr.

Afsláttur:
Samtals 235900

Farþegaupplýsingar:

Kennitala Fullt nafn Netfang Sími

Skilaboð til KVAN Travel

Lengd:
5 dagar
Samgöngur
Flug,
Gerð ferðar:
Endurmenntunarferð
Vörunúmer:
K-105
Staðsetning:

Uppselt er í ferðina. Verið er að athuga með fleiri sæti. Vinsamlegast hafðu samband við okkur á kvantravel@kvan.is fyrir frekari upplýsingar.

 

Playful Learning – Leikandi nám (að læra í gegnum leik) 11.-15. ágúst.

Fyrsta playful Learning ferð okkar seldist hratt upp og vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við nýrri ferð í ágúst. Í þessari endurmenntunarferð til Billund og Árósar í Danmörku verður unnið eftir hinni vinsælu hugmyndafræði “Playful Learning” eða að læra í gegnum leik. Þetta er einstök ferð sem flestir kennarar ættu að geta lært nýja nálgun sem hægt er að nýta í störfum sínum hér heima.

Hvað er Playful Learning?

Playful Learning er áætlun á landsvísu sem allir kennaraháskólar Danmerkur og Lego Foundation vinna að í sameiningu. Framtíðarsýnin er grundvöllur að langtíma og metnaðarfullu samstarfi þar sem sameiginlegt markmið er að styrkja skapandi, tilraunakennda og leikandi nálgun barna við heiminn og löngun þeirra til að læra.  Unnið er með leikandi nálgun að vellíðan, þroska og námi.

Playful Learning byggir á þremur kennslufræðilegum meginreglum. Meginreglurnar hafa verið þróaðar í samvinnu við kennara og nemendur af uppeldis- og kennarabrautum landsins á grundvelli 4 ára þróunarstarfs. Hér er hægt að líta á heimasíðu Playful Learning.

Hvað gerum við í ferðinni?

Lego House heimsókn

Við byrjum ferðina á heimsókn í Lego House í Billund og fáum leiðsögn um húsið og upplifunarsvæði þess. Við heyrum grípandi sögu um upphaf Lego, skoðum einstakan arkitektúr Lego House og fáum dýpri innsýn í listina að læra í gegnum leik. Og að sjálfsögðu fáum við tækifæri til að leika okkur aðeins með Lego kubba áður en við yfirgefum Lego House.

Via University College

Við munum heimsækja kennaraháskólann í Árósum, Via University College, og fara á heilsdags vinnustofu í PlayLab (leiksmiðju). Þar munum við dýfa okkur á bólakaf í listina að læra í gegnum leik og læra ýmsar aðferðir Playful Learning. Við brettum upp ermar og vinnum með meginreglurnar þrjár á verklegan hátt svo þátttakendur fái sameiginlegar hugmyndir og upplifun um hvað Playful Learning er.

Við erum opin fyrir hinu ófyrirsjáanlega þegar við gerum tilraunir í vinnustofunni og vinnum með ferla sem hafa markmið en ekki niðurstöðu. Við gerum pláss fyrir valfrelsi og nýjar hugmyndir.

Við krefjumst merkingarbærni og þess að nám sé í forgangi, þannig að leikurinn styðji við námið.

Á vinnustofunni verður unnið með mismunandi nálganir í leik s.s sköpunargleði, leiki, samkeppni og öll verkefni studd með kennslufræðilegum rökum.

Vinnustofa – Guðrún Gyða

Við ljúkum dagskrá ferðarinnar á stuttri vinnustofu með Guðrúnu Gyðu og förum yfir það sem við höfum lært síðstu daga, sköpum nýjar lausnir og verkefni sem við viljum vinna áfram með eftir að heim er komið.

Farastjóri/leiðbeinandi í ferðinni

Dagskrá ferðarinnar verður í höndum Guðrúnar Gyðu. Guðrún Gyða er lærð arkitekt og kennari og hefur kennt nýsköpun og hönnun í grunn- og framhaldsskólum. Hún gaf nýlega út kennsluefnið Út fyrir boxið og brennur fyrir skapandi kennsluháttum og leikandi námi.

Verð

235.900 krónur á farþega ef gist er í tveggja manna herbergi
287.900 krónur ef gist er í einstaklingsherbergi

Innifalið í verði
  • Flug fram og til baka til Billund með Play
  • 20 kg. innritaður farangur
  • Akstur erlendis
  • Gisting í 4 nætur á Radisson Blu Scandinavia Hotel í Árósum með morgunverði. Hótelið er glæsilegt fjögurra  stjörnu hótel, frábærlega staðsett í Árósum
  • Aðgangur að Lego House og fræðsla þaðan
  • Heils dags vinnustofa í Via University College auk hádegisverðar
  • 3 klst. vinnustofa á sal á hóteli með Guðrúnu Gyðu
  • Fararstjórn og leiðsögn
Ferðatilhögun

11. ágúst 2024
– Flogið er með Play kl. 06:45 til Billund þann 11. ágúst, lent verður í Billund kl. 11:45 að staðartíma.
– Rúta ekur hópnum frá flugvelli beint í Lego House þar sem vinnan hefst.
– 12:30-17:00 Kynning vinna í Lego House.
– Rúta ekur hópnum á hótel í Árósum og innritun þar um kl. 18:00.

12. ágúst 2024
– Vinnustofur/námskeið í Via University Collage frá kl. 09:30 – 15:30

13. ágúst 2024
– Vinnustofa í sal á hóteli frá kl. 10:00 – 12:00

14. ágúst 2024
– Frjáls dagur

15. ágúst 2024
– Akstur frá hóteli að flugvelli í Billund.
– Flug heim klukkan 12:45 og lent í Keflavík um klukkan 13:50.

 

Takmarkaður fjöldi er í þessa einstöku endurmenntunarferð og lágmarksþátttaka 10 þátttakendur. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í síma 519 3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!
KVAN og KVAN Travel

Herbergi

Einstaklingsherbergi, Tveggja manna herbergi

Innifalin þjónusta

Fjögurra stjörnu hótel Flug fram og til baka til Billund með Play Fararstjórn og leiðsögn Akstur erlendis 20 kg. innritaður farangur