Aðventuferð með Gissuri Páli og Önnu Steinsen til Rómar 26.-30. nóvember 2026

 

Komdu með í aðventuferð til Rómar með stórsöngvaranum Gissuri Páli Gissurarsyni og Önnu Steinsen dagana 26.-30. nóvember 2026. Gist verður á glæsilega hótelinu NH Collection Roma Giustiniano sem stendur í Prati-hverfinu, sem er eitt af glæsilegri og rólegri hverfum miðborgarinnar. Hverfið er þekkt fyrir breiðar götur, góð veitingahús, kaffihús og verslanir og er almennt talið mjög öruggt hverfi. Dagskráin er frábær, tveir kvöldverðir innifaldir í verði á fallegum veitingastöðum, galakvöld og tónleikar með Gissuri Páli sem er þekktur fyrir fallegan söng og skemmtilegar sögur. Allir verða að fá að upplifa Rómarrölt með Ingó fararstjóra sem þekkir borgina eins og lófann á sér og hann segir okkur sögur og stoppar á sögufrægum stöðum. Í dagskránni er einnig ferð á jólamarkað og síðan njótum við alls hins besta sem Róm hefur upp á að bjóða. Söngur, gleði og menning af bestu gerð í frábærum félagsskap og í höndum frábærra fararstjóra.

 

Hægt er að velja að greiða staðfestingargjald (50.000 kr.) núna í ferðina. Staðfestingargjaldið er óendurkræfanlegt en lokagreiðsla greiðist svo í síðasta 9 vikum fyrir brottför. Áminning um lokagreiðslu verður send til skráðra þátttakenda þegar að henni kemur.

Athugið að um takmarkað sætapláss er í ferðina.

 

Allar nánari upplýsingar um ferðina er að finna hér neðar á síðunni.

Price range: 284.900 kr. through 349.900 kr.

Afsláttur:
Greiða innborgun á 50.000 kr.
Samtals 284900

Farþegaupplýsingar:

Skilaboð til KVAN Travel

Kennitala greiðanda



Lengd:
4 dagar
Samgöngur
Flug, akstur erlendis
Gerð ferðar:
Lífsstílsferð
Vörunúmer:
K-168
Staðsetning:

KVAN Travel býður upp á ógleymanlega aðventuferð til Rómar 26.-30. nóvember. Ferð þar sem stórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson og Anna Steinsen munu halda utan um hópinn.

Gissur Páll Gissurarson hélt sem ungu maður til náms á Ítalíu til að læra óperusöng. Bæði námið og dvölin fóru langt fam úr væntingum og því ílengdist hann þar. Hann ákvað strax að taka ítölskuna föstum tökum en hana lærði hann við háskólann í Siena í hjarta Toscana héraðs. Lengst af bjó hann í Parma sem nú er matarhöfuðborg Evrópu, en ferðaðist um alla Ítalíu til að koma fram og syngja. Það sem eftir stendur í huga Gissurar Páls er að lífið á Ítalíu er einstakt, maturinn skipar stórann sess og öll smáatriðin í hinu daglega lífi Ítala gefa lífinu lit. Hann saknar mest hverfiskaffihússins, götumenningarinnar og líflegar samræður við aðra kaffihúsagesti um tónlist og óperur. Róm er ein fyrsta borgin sem Gissur heimsótti og heillaði borgin hann með sínum stórkostlegu byggingum, fornminjum, ævafornri menningu, fjölbreyttu listalífi, matarmenningu og óþrjótandi krafti. Það er því ekki með ofsögum sagt að Róm sé vagga nútíma menningar.

Anna Steinsen er eigandi og þjálfari hjá KVAN og KVAN Travel. Anna hefur haldið óteljandi fyrirlestra og námskeiða hérlendis sem og erlendis. Anna hefur ferðast með hópa víða erlendis og er þekkt fyrir einstaka gleði, fagmennsku og góðan húmor hvert sem hún fer. Anna er margreyndur fararstjóri og fyrirlesari og starfaði sem fararstjóri á Ítalíu á sínum yngri árum þar sem hún varð ástfanginn af menningu og matargerð.

Saman munu þau Gissur og Anna halda utan um hópinn í þessari einstöku ferð til Rómar.

 

Heildarverð ferðar er eftirfarandi: ​​

  • Verð á farþega miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi: 284.900 kr.
  • Verð á farþega ef gist er í einstaklingsherbergi: 349.900 kr.

Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 9 vikum fyrir brottför.

Hægt er að greiða með kreditkorti eða Netgíró.

Innifalið í ferðinni:
  • Beint flug með Icelandair til Rómar
  • 23 kg. farangursheimild + 10 kr. handfarangur
  • Gisting í fjórar nætur á NH Collection Roma Giustiniano með morgunverði (Sjá hótel hér)
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Velomin drykkur og söngur
  • Kvöldverður eitt kvöld á hótelinu
  • Galakvöldverður á veitingastað
  • Rómarrölt með Ingó
  • Ferð á jólamarkað
  • Söngur og skemmtun fararstjóra
  • Fararstjórn

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!

Kær kveðja,
Starfsfólk KVAN Travel

Herbergi

Einstaklingsherbergi, Tveggja manna herbergi

Innifalin þjónusta

Gisting á NH Collection Roma Giustiniano með morgunverði Flug fram og til baka til Rómar með Icelandair 23 kg. innritaður farangur + handfarangur Akstur erlendis Einn kvöldverður á hóteli auk galakvöldverðar
Rómarrölt með Ingó Jólamarkaður Fararstjórn, söngur og gleði