Opin endurmenntunarferð kennara til Calpe 9.-14. júní 2027

 

Opin endurmenntunarferð fyrir kennara til Calpe 9.-14. júní 2027. Opin ferð þýðir að kennarar geta skráð sig burt séð frá því hvaða skóla þeir tilheyra. Frábær ferð fyrir kennara  í lok skólaársins, námskeið, sól, gleði og í senn ró og hleðsla munu einkenna ferðina. Gist verður á glæsilegu hóteli á Calpe (Estimar Calpe Suitopia) og er morgunmatur innifalinn.

 

KVAN og KVAN Travel hafa sett saman frábæra endurmenntunarferð til Calpe í ágúst 2027. Ferðin er frábært tækifæri fyrir kennara að sækja sér námskeið og innblástur fyrir kennslu á suðrænum slóðum áður en skólaárið hefst.

Skráning fer fram hér að neðan, farið er fram á 50.000 kr. staðfestingargjald, staðfestingargjaldið er óendurkræft en lokagreiðsla greiðist svo í síðasta lagi 9 vikum fyrir brottför (áminning um lokagreiðslu verður send á kaupanda).

 

Heildarverð ferðar eru eftirfarandi: ​​

  • ​Verð á kennara miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi: 323.900 kr.
  • Verð á kennara miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi með sjávarsýn: 351.900 kr
  • Verð á kennara ef gist er í einstaklingsherbergi: 445.900 kr.
  • Verð á kennara ef gist er í einstaklingsherbergi með sjávarsýn: 482.900 kr
  • Verð fyrir maka í tveggja manna herbergi með kennara: 283.900 kr.
  • Verð fyrir mak í tveggja manna herbergi með kennara og sjávarsýn: 311.900 kr

Upplýsingar um hvernig hægt er að ganga frá eftirstöðvum verða sendar síðar en ganga þarf frá lokagreiðslu eigi síðar en 9 vikum fyrir brottför.

Hægt er að greiða með kreditkorti eða Netgíró.

 

  • Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 25 þátttakendur þarf svo farið verði. Skráningu líkur 1. mars.
  • Athugið að skrá ykkur ekki sem maki ef þið ætlið að sækja um styrk fyrir endurmenntun.
  • Athugið að einungis er hægt að skrá einn þátttakanda í einu í ferðina – herbergisfélagar þurfa því báðir að skrá sig.
  • Möguleiki er á að framlengja ferðina – þá er mikilvægt að skilja eftir athugasemd í bókunarferlinu, við athugum þá framboð á heimferðadögum. 

 

Allar nánari upplýsingar og dagskrá ferðar má sjá hér neðar á síðunni.

Price range: 283.900 kr. through 482.900 kr.

Afsláttur:
Greiða innborgun á 50.000 kr.
Samtals 283900

Farþegaupplýsingar:

Skilaboð til KVAN Travel

Kennitala greiðanda



Lengd:
5 dagar
Samgöngur
Flug, akstur erlendis, ferð á Algar fossa
Gerð ferðar:
Endurmenntunarferð
Vörunúmer:
K-186
Hópastærð:
Lágmark 25 manns
Staðsetning:

 

Komdu með í stórkostlega opna endurmenntunarferð til Calpe dagana 9. - 14. júní 2027. Takmarkað pláss er í ferðina en að lágmarki 25 þátttakendur þarf svo farið verði. Síðasti séns til að skrá sig í ferðina er 1. mars 2027.

Innifalið í ferðinni:
  • Beint flug með Icelandair til Alicante
  • 23 kg. farangursheimild + 10 kr. handfarangur
  • Gisting á Estimar Calpe Suitopia  í 5 nætur með morgunverði  (sjá hótel hér)
  • Akstur til og frá flugvelli erlendis
  • Námskeið KVAN
  • Ferð á Algar fossa
  • Íslensk fararstjórn alla leið

Fararstjórn er í höndum þjálfara KVAN.

Hægt er að sjá efnisþætti og nánari dagkrá HÉR

 

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur hjá KVAN Travel í síma 519-3040 eða í gegnum netfangið kvantravel@kvan.is

Hlökkum til að ferðast með ykkur!

Kær kveðja,
KVAN Travel

Herbergi

Einstaklingsherbergi, Einstaklingsherbergi með sjávarsýn, Tveggja manna herbergi, Tveggja manna herbergi með sjávarsýn, Maki í tveggja manna herbergi, Maki í tveggja manna herbergi með sjávarsýn

Innifalin þjónusta

Flug fram og til baka til Alicante með Icelandair 23 kg. innritaður farangur + handfarangur Gisting á Estimar Calpe Suitopia með morgunverði Akstur til og frá hóteli Ferð á Algar fossa
Námskeið KVAN Fararstjórn

Dagskrá

9. júní - Ferðadagur

10. júní - Kl. 10:00-13:00. Námskeið KVAN - Markmið og væntingar - Bekkjarstjórnun

11. júní - Kl. 10:00-12:00. Námskeið KVANAndleg endurheimt og sjálfsmildi

11. júní - Kl. 15:00. Skoðunarferð að Algar fossum

12. júní - Kl. 10:00-13:00. Námskeið KVAN - Jákvæð samskipti- leiðir til árangurs og jákvæð endurgjöf

13. Júní -Frjáls dagur

14. júní - Ferðadagur