Aðrar iþróttir

Það er sama hvaða íþrótt þið stundið eða um sé að ræða meistaraflokk eða yngri flokka þá finnum við æfinga- og keppnissvæði sem hentar og sníðum skipulagið að ykkar þörfum.

Í hverri ferð er hægt að óska eftir sérstöku námskeiði fyrir teymið með áherslu á málefni sem þið viljið vinna með.

Hvað getum við lært?Dæmi um áherslur í íþróttaferðum okkar eru meðal annars:

 

  • Bæta samskipti og tjáskipti í teymi

  • Hópefli og liðsheildarþjálfun

  • Auka traust og styrkja liðsandann

  • Tjáning og sjálfstyrking

  • Markmiðasetning

  • Leiðtogaþjálfun

 

 

Hannaðu þína ferð